Jennifer Lopez og kornunga leikfangið hennar, Casper Smart, eru hætt saman eftir rúmlega tveggja ára samband.
Samkvæmt heimildarmönnum hafði parið verið að fjarlægjast hvort annað á undanförnum mánuðum.
Heimildarmenn segja að parið ætli sér að halda áfram að vera vinir en að sambandið sé dautt.
Einhverjar slúðursögur hafa verið á flakki um að Casper hafi haldið framhjá Jennifer með kynskiptingi eða transkonu en ekkert hefur verið staðfest um þetta. Transkonan, sem kallar sig Xristina Marie, fullyrðir þó að hún hafi átt vingott við Casper. Sjálfur segist hann ekki búinn að ákveða hvað hann ætli að gera í þessum ásökunum en eitthvað muni það þó vera.
Lestu meira um það hér.
Jennifer og Casper byrjuðu saman seint á árinu 2011, stuttu eftir að hún og fyrrum eiginmaður hennar, Marc Anthony, tilkynntu að þau væru að skilja en mikill aldursmunur var á parinu. Casper er 26 ára á þessu ári.
Hvorki Jennifer né Casper hafa tjáð sig um sambandsslitin.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.