Leik og söngkonan Jennifer Lopez er þekkt fyrir sinn hasarkropp og er svo sannarlega ekki hrædd við að sýna hann á sviði.
Það var einmitt þetta sem Jennifer gerði þegar hún hélt tónleika í Bronx á dögunum en söngkonan ólst upp þar eins og frægt varð með laginu Jenny from the Block. Fatnaðurinn var fleginn, stuttur og skildi oft á tíðum lítið eftir fyrir ímyndunaraflið, ekki slæmt fyrir skvísu á fimmtugsaldri! Jennifer virðist vera eins og gott vín sem verður bara betra með aldrinum.
Samband hennar og Casper Smart virðist þó standa á brauðfótum en Casper hefur víst verið að spjalla við transpíu sem hótar að koma fram með öll samtöl þeirra, myndir og meira til!
Spurning hvort að sambandið þoli þetta hjá þeim skötuhjúum?? Kíktu á Jennifer hér fyrir neðan, glæsileg á góðum aldri!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig