Söngkonan Jennifer Lopez hefur farið nokkar ferðir niður altarið, er tvíburamamma og þekkt um allan heiminn.
Þrátt fyrir allt kaosið í kringum hana segist Jennifer ekki vilja hafa hlutina öðruvísi. Og Jennifer er mætt aftur sem dómari í American Idol þannig að það er heldur betur meira en nóg að gera hjá henni.
Einhverjir ráku upp stór augu þegar Jennifer byrjaði með dansaranum Casper Smart en það er átján ára aldursmunur á milli þeirra og flestir héldu að hann yrði bara “boytoy” en þau virðast vera afar náin og hrfin af hvort öðru. Þrátt fyrir að vilja hafa smá ringulreið í lífi sínu segist Jennifer einnig sækjast í öryggi og Casper veiti henni einmitt það.
Ætli að þau muni gifta sig að lokum eða kannski finnst Jennifer bara fínt að hafa hlutina eins og þeir eru, án skuldbindinga? Hún er að minnsta kosti alltaf svöl.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig