Þegar þú ert söngkona, leikkona, dansari, mamma og ég veit ekki hvað og hvað þá er um að gera að vera nógu mikil díva og hafa eins marga og þú vilt til að gera þig sæta!
Það gerði söngkonan Jennifer Lopez en hún var með fimm manna fylgdarlið við myndatöku sem fór fram í London á dögunum. Meðal þeirra sem voru í fylgdarliðinu voru hársnyrtir, förðunarfræðingur og stílisti en hinir tveir voru ljósmyndari og persónulegur aðstoðarmaður… eða kannski þarf bara svona marga til að halda dömunni í góðu skapi?
Það virðist borga sig að hafa svona stórt fylgdarlið með sér því Jennifer pósaði fyrir myndatökuna eins og enginn væri morgundagurinn en hún fór fram í Hyde Park.
Söngkonan var heldur meira hulin en þegar hún kom fram í Britain’s Got Talent á dögunum en hún hefur fengið afar harða gagnrýni vegna klæðaburðar síns þegar hún kom fram í þættinum. Þar var hún næstum því ber að neðan, svo mikið þurfti að sýna af holdi.
Mögulega er hún að pósa þarna fyrir væntanlega fatalínu? Það þurfti amk góðan hóp til að halda henni smart og ætli það sé ekki óhætt að segja að þetta hafi tekist. Hún er flott.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig