Tímaritið Glamour er að koma með nýtt blað á markaðinn sem nefnist “Glam Belleza Latina” og eins og nafnið gefur til kynna þá er blaðið tileinkað konum frá latino menningunni.
Jennifer hafði þetta að segja um latino konur:
Fegurð sem er “Latino” er eins og regnboginn, við höfum svart, hvítt og karamellu. Við erum með ljóshærðar stúlkur, blá augu, brún augu og mjög dökkt skinn. “latin” fegurð er fyrir alla.
Jennifer passar upp á það að vera alltaf trú sjálfri sér, hún segir að hún hafi sjálfstraust en eigi samt sín augnablik:
“Þú verður að muna að meta það sem þú átt og að þú hefur einhvern sértakan eiginleika sem enginn annar hefur. Fólk hrósar mér fyrir að vera útlitslega falleg en samt er þetta ekki svo einfalt, fegurðin er eitt en ég er líka flókin og pínu úfin innra með mér. Þetta er það sem gerir þig að mun áhugaverðari einstaklingi”.
Líf Jennifer hefur verið frekar flókið en hún skildi við eiginmann sinn Marc Anthony á síðasta ári. Jennifer segir að lagið sitt “Dance Again” hafi hjálpað henni heilmikið þegar hún gekk í gegnum skilnaðinn. Lagið varð mantran hennar og hún segir að hún hafi sífellt verið að endurtaka þessar setningar sem tengjast laginu: “You will live. You will love. You will dance again”. Hún þurfti einfaldlega á þessu lagi að halda.
Núverandi kærasti Jennifer, hinn 25 ára gamli Casper Smart, kom með Jennifer í sjö mánaða tónleikaferðalag en Casper stjórnaði dansatriðum söngkonunnar og allra dansaranna á tónleikarferðalaginu. Að sögn Jennifer styrktist sambandið þeirra við þetta ferðalag en það fylgi mikið álag svona ferðalögum og þau hafi orðið sterkara par fyrir vikið.
Hér að neðan getur þú séð tónlistarmyndbandið við lag Jennifer “Dance Again” og dillað þér og dansað með.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=bjgFH01k0gU[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig