Ég hef sagt það áður að Jennifer Lawrence er uppáhaldið mitt í Glysborginni þessa stundina, stórglæsileg leikkona með báða fætur á jörðinni.
Í nýjustu auglýsingaherferðinni fyrir Dior er Jennifer nánast ómáluð og náttúruleg fegurð hennar skín í gegn. Hárið er pínu úfið sem að mér finnst smart og í anda fatnaðarins sem hún klæðist en hún er meðal annars í dragt og síðri kápu.
Ljósmyndarinn Michael Jansson myndaði Jennifer fyrir Dior herferðina en hann ákvað að hafa Jennifer lítið málaða til þess að fanga fegurð hennar – það tókst svo sannarlega!
Kíktu á myndirnar hér fyrir neðan.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig