Leikkonan og uppáhaldið mitt Jennifer Lawrence getur sko svarað fyrir sig það er alveg á hreinu og hún hefur ýmislegt að segja þegar kemur að líkamsímynd ungra kvenna í dag.
Jennifer svaraði nýlega spurningum aðdáenda á viðburði á vegum Yahoo. Svörin voru einlæg og hreinskilin eins og alltaf en þegar hún var spurð út í líkamsímynd nútímakvenna og ungra stúlkna hafði hún þetta að segja:
Þegar fólk er að gagnrýna þig vegna útlits þíns er best að gefa þeim puttann! Það þýðir ekkert annað en að skella skollaeyrum við öllum gagnrýnisröddunum. Á maður alltaf að vera svangur til að þóknast öðrum til að vera grannur og spengilegur? Ég elska að borða og þess vegna fer þetta mikið í taugarnar á mér!
Jennifer segir einnig að “hætturnar” séu allsstaðar, módel og leikkonur séu fótósjoppaðar í drasl sem gefi ungum konum í dag kolvitlausa hugmynd um það hvernig alvöru kona lítur út, ekkert er raunverulegt og allt er lagað til!
Leikkonunni finnst þættir eins og Fashion Police sem eru sýndir á sjónvarpsstöðinni E! einnig gott dæmi um að það sé bara allt í lagi að gagnrýna klæðaburð fólks, útlit þeirra og hversu feitt eða grannt það er. Jennifer segir að það sé kallað “velkomin í alvöru heiminn” en henni finnst að þetta ætti ekki að vera hinn raunverulegi heimur.
“Ástandið lagast ekki fyrr en að við tökum málin í okkar hendur og segjum stopp,” segir Jennifer. “Um leið og við hættum að kaupa slúðurblöð og lesa minna af niðurrifi á netinu þá lagast þetta en á meðan við mötum þessa hegðun þá heldur vitleysan áfram.”
Glæsileg stelpa sem er frábær fyrirmynd fyrir ungar konur og stelpur í dag!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig