Jennifer ó Jennifer mín, þú verður glæsilegri með hverjum deginum sem líður ég get svo svarið það!
Þessi stúlka er sko með X-faktorinn það er óhætt að segja það! Í nýjustu auglýsingaherferð Dior er leikkonan náttúrulega förðuð með töffaraklippinguna sína, glæsilegri en nokkru sinni fyrr að mínu mati. Það var ljósmyndarinn Patrick Demarchelier sem myndaði Jennifer fyrir þessa herferð.
Þetta er þriðja auglýsingaherferð Jennifer fyrir Dior og hún elskar tískurisann sem virðist dýrka hana og dá á móti en leikkonan hefur ekki sést í neinni annari hönnun á rauða dreglinum undanfarin ár.
Sjáðu myndirnar hér fyrir neðan af þessari glæsilegu og jarðbundnu stúlku.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig