Hin unga og upprennandi leikkona Jennifer Lawrence tekur við af Milu Kunis sem andlit handtöskulínu DIOR tískuhússins.
Jennifer sem er tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik í kvikmyndinni “Silver Linings playbook” hefur alltaf sagt að hún sé ekki þessi týpíska Hollywood týpa, hún sé ekki þvengmjó og á Hollywood kvarða teljist hún vera feit!
DIOR tískurisinn er greinilega ekki sammála leikkonunni enda er hún stórglæsileg eins og hún er og geislar í nýju auglýsingaherferðinni.
Myndirnar af Jennifer birtust núna aðeins nokkrum dögum fyrir Óskarsverðlaunahátíðina en það var tilkynnt um að hún yrði andlit línunnar í Október síðastliðinn.
Jennifer er án efa ein sú heitasta í glysborginni núna en næsta mynd af The Hunger Games kvikmyndunum er einnig væntanleg þannig að það verður heldur betur nóg að gera hjá leikkonunni á rauða dreglinum á næstunni.
Stóra spurningin er síðan sú, ætli að hún verði í DIOR kjól á morgun?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig