Óskarsverðlaunaleikkonan Jennifer Lawrence er með fæturna á jörðinni og finnst öll athyglin í kringum frægðina mjög óþægileg.
Þrátt fyrir að vera orðin heimsfræg á örskotstundu er Jennifer ekki að láta frægðina stíga sér til höfuðs. Hún á enn sama bíl og hún átti áður en hún varð fræg og hefur ekki fjárfest í rándýru einbýlishúsi. Jennifer segir að sér þyki þessir veraldlegu hlutir ekkert merkilegir og þakkar hún uppeldinu sínu fyrir það. Henni var kennt að meta það sem hún ætti og að peningar væru ekki allt, þeir kæmu að góðum notum en myndu ekki færa þér hamingju.
Jennifer finnst hún vera mjög heppin að fá að lifa því lífi sem hún lifir núna og að hennar eigin sögn hefur hún ekki tíma til þess að vera montin eða “cocky” með árangur sinn á hvíta tjaldinu. Hún segir einnig að fjölskyldan hennar myndi passa það að hún yrði ekki algjör skíthæll með tímanum en hún segist vera afar heppin með fjölskyldu.
Jennifer segist ekki ganga um og hugsa “Já ég er fræg! Sjáið mig”. Henni finnst óþægilegt hvernig ókunnugt fólk talar og horfir á hana því þá skynjar hún að hún er öðruvísi. Fólk talar ekki við hana á sama hátt og áður en bestu vinir hennar og fjölskylda koma þó ekki fram við hana eins og einhverja risastórstjörnu og henni finnst það gott.
Leikkonunni finnst mjög óþægilegt að koma fram á rauða dreglinum og á einhverjum viðburðum því hún fer í algjöran baklás og veit aldrei hvernig hún á að vera. Hún elskar að leika í kvikmyndum og segist vera best fyrir framan myndavélina í stúdíói eða á tökustað en á einhverjum viðburði líður henni mjög illa.
Jennifer var þekkt fyrir það að leika í svokölluðum “Indie” myndum áður en hún tók að sér hlutverk í kvikmyndinni “The Hunger Games” og hún var mjög lengi að taka ákvörðun um það hvort hún ætti að leika í slíkri stórmynd. Hún afréð svo að ræða við mömmu sína um myndina og karakterinn sem hún leikur í kvikmyndinni og mamma hennar sannfærði hana um að taka þetta að sér. Jennifer segir að henni þyki afar vænt um karakterinn sinn Katniss Everdeen og í dag sér hún ekkert eftir því að hafa farið út í þetta þrekvirki.
Falleg, flott og jarðbundin leikkona sem á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í kvikmyndaheiminum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig