Leikkonan Jennifer Lawrence er forsíðustúlka septembertölublaðs Vogue en það tölublað er “biblía” tískunnar.
Leikkonan sem er ung að árum hefur þegar hlotið Óskarinn og getur valið um hin ýmsu kvikmyndahlutverk en leikstjórar og höfundar eru æstir í að fá hana til að leika í kvikmyndum sínum.
Jennifer vissi alltaf að hún yrði fræg einn daginn. Þegar hún var að alast upp í Kentucky hafði hún ákveðið að verða læknir og mamma en það blundaði samt sem áður eitthvað meira undir niðri hjá leikkonunni. Hún lá oft upp í rúmi á kvöldin og hugsaði: ,,Verð ég í sjónvarpinu, kannski sem fyrirlesari eða jafnvel eitthvað meira en það?” Jennifer segir þó að hún hafi ekki séð frægðina fyrir í draumi heldur gerðist þetta bara og hún áttaði sig alveg á því hvað var að gerast þegar stóra tækifærið kom loksins.
Jennifer segir að hún hafi verið skrýtin sem barn, henni var þó ekki strítt og hún var ekkert klárari en hinir krakkarnir. Hún passaði ekki inn í hópinn því hún var með svo mikinn kvíða, þoldi ekki frímínútur, skólaferðalög fóru illa í hana og hún mætti nánast aldrei í partý. Í dag er leikkonan fræg um allan heim og henni finnst það afar erfitt. Jennifer segist hafa verið í dramakasti yfir frægðinni undanfarið og henni finnst eins og allur heimurinn viti allt um hana.
Mér finnst þetta ekki allt í lagi svo einfalt er það. Ég er bara venjuleg stelpa og manneskja sem er ekki búin að vera lengi í þessum bransa. Mér finnst erfitt að kyngja því að þetta sé nýja normið í lífinu mínu – ég er ekki róleg yfir þessu.
Jennifer er glæsileg í myndaþætti tímaritsins og það er greinilegt að hún er með báða fæturnar á jörðinni. Vonandi heldur hún áfram að vera jafn einlæg og fellur ekki út af sporinu líkt og svo margar stórstjörnur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig