Að rekast á fyrrverandi maka getur verið óþægilegt fyrir alla viðstadda en að sitja í 11 klukkutíma flugferð með núverandi konu þíns fyrrverandi er martröð!
Jennifer Aniston (44) slapp naumlega undan slíkri lífsreynslu þegar starfsmaður hjá flugfélaginu British Airwaves uppgvötaði að Angelina Joile (38) hafði bókað miða með sama flugi og Jennifer. Hann hafði samband við aðstoðarfólk Jennifer og var ferðalag hennar umsvifalaust endurskipulagt. Jennifer flaug því frá Los Angeles til London á mánudagsmorgunn í stað þess að taka sunnudagsflugið með Angelinu.
Leikkonurnar tvær hafa haft mikið fyrir því að mætast aldrei og því hefði andrúmsloftið í þessari 11 klukkustunda flugferð verið heldur rafmagnað. Líkt og flestir vita er Angeline Jolie í sambúð með Brad Pitt, en hann fór frá Jennifer til að vera með Angelinu fyrir um 8 árum síðan.
Jennifer Aniston hefur viðurkennt það opinberlega að hún tók skilnaðinn afar nærri sér en hún hefur þó fundið ástina á ný og hyggst ganga upp að altarinu með unnusta sínum Justin Theroux (42) í náinni framtíð.
Þó stjörnunar virðast oft lifa í öðrum heimi en restin af mannkyninu er þó sitthvað sem þau deila með okkur hinum.
Það er alltaf óþægilegt að hitta fyrrverandi og ,,nýju konuna” – þó þú sért rík, fræg og falleg Hollywoodstjarna.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.