Er Jennifer Aniston loksins orðin ólétt?
Því miður er svarið við þeirri spurningu nei.
Í vikunni greindi In Touch frá því að leikkonan væri komin fjóra mánuði á leið og kallaði það „kraftaverkabarn“.
Enn og aftur nei. Aniston er ekki ólétt.
Í síðasta mánuði hélt In Touch því einnig fram að Aniston og kærasti hennar, Justin Theroux, ættu von á barni saman.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem In Touch birtir fréttir af leikkonunni sem eru einfaldlega rangar.
Tímaritið sagði frá því í febrúar á þessu ári að Aniston og Theroux væru hætt saman. Tímaritið sagði einnig að Aniston og Brad Pitt væru að taka saman aftur. Ekkert af þessu er satt.
„Hún er ekki ólétt,“ sagði talsmaður leikkonunnar í viðtali.
Þar með er það komið á hreint — (sem gerir þetta mögulega að ‘ekki frétt’?)
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.