Justin Theroux er bannað að geyma fötin sín í hjónaherberginu á heimilinu sem hann deilir með Jennifer Aniston, samkvæmt National Enquirer.
Samkvæmt tímaritinu þarf Justin að nota önnur herbergi til að geyma flíkur sínar.
Tímritið heldur því fram að þessari reglu hafi verið komið á eftir að Jennifer stækkaði fataskápinn í hjónaberginu og er hann núna eingöngu fyrir hennar flíkur, skó og skartgripi.
Heimildarmaður náinn parinu segir hinsvegar þetta af og frá.
Parið deilir saman fataskápnum… sem er bara gott mál.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.