Þrátt fyrir mikla spennu og tilhlökkun aðdáenda út um allan heim virðist vera að leikkonan Jennifer Aniston ekki sé ekki barnshafandi og fréttin sem skók Alnetið gervallt var uppspuni frá rótum…
Vá þvílíkt svekkelsi!!! Aumingja ég var farin að veðja á kyn og allt! Nei, kannski ekki alveg en þvílíkar gleðifregnir sem þetta hefðu verið, hefði allt reynst satt vera.
Fésbókarsíðunni sem átti að vera “opinber” síða Jennifer hefur nú verið eytt og allt hennar fólk og fjölmiðlafulltrúar hafa neitað þessum sögusögnum. Hinsvegar hafa menn tekið sérstaklega eftir því að leikkonan sjálf hefur lítið sést á vappi eftir að fréttir um óléttuna fóru eins og sinubruni um Alnetið.
Annar orðrómur kom nokkrum dögum seinna að Jennifer og Justin hefðu gift sig á laun en það reyndist einnig vera eitthvað bull þegar betur var að gáð. Sögurnar hefja sig fljótt á flug í Hollywood og ekki alltaf gott að vita upp á tíu hvað er satt og logið. Þetta er eins í glysborginni og annarsstaðar þar sem mikill áhugi er á ákveðnum persónum, stundum fylgir dass af skáldskap með þessu öllu. Svo er það hitt…
Ætli leikkonan sé bara að spila með okkur aðdáendur sína? Kannski er hún bæði gift og með barni en langar ekki til að heimurinn sé á hliðinni út af því og að papparössum sem fylgja henni hvert fótmál fjölgi um helming. Það er álag að vera ólétt, hvað þá ólétt A-lista stjarna í Hollywood.
Hið sanna kemur þó fyrr eða síðar í ljós. Ekki gott að leyna óléttu þegar á líður.
Ég lofa að fylgjast grannt með gangi mála, fylgist með Pjattinu!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig