Jennifer Aniston liggur ekkert á að komast upp að altarinu með unnusta sínum Justin en parið hefur sagt að þeim líði eins og þau séu löngu gift.
Jennifer og Justin eru um þessar mundir að slaka á í Cabo san Lucas suður af Kaliforníu en Jennifer hefur verið afar upptekin að kynna nýjustu kvikmynd sína “Were The Millers” undanfarið. Kynningarherferðinni er hinsvegar nýlokið og parið slakar á í sólinni.
Þau virðist afar ástfangin, kyssast og kela í pottinum og hafa gaman saman ef marka má þessar myndir.
Jennifer segir að hún sé ekki enn búin að velja brúðarkjólinn. Henni finnist skemmtilegra að velja hann bara strax en ekki vera að skoða marga kjóla. Hún ætlar sér að skipuleggja brúðkaupið og allt í kringum það í rólegheitum með Justin og henni liggur ekkert á, hugsanlega mun allt smella saman á síðustu mínútunum en að plana of mikið gerir hana klikkaða!
Jennifer og Justin vilja þó mjög ólík brúðkaup ef marka má slúðurfréttir vestanhafs. Justin vill hafa fáa og náið brúðkaup á meðan Jennifer vill hafa marga gesti og halda heljarinnar partý.
Samkvæmt heimildum pressunnar úti verður brúðkaupið í lok sumars en Jennifer segir samt sem áður að það verði ekki í bráð, aðdáendur Jen bíða spenntar!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig