Leikkonan Jennifer Aniston elskar jóga, hún elskar það svo mikið að hún segir að það geti lagað öll heimsins vandamál!
Leikkonan er á fullu núna að undirbúa brúðkaup sitt en í öllu stressinu segist hún leita í jóga til þess að fá frið og ró.
Jennifer líkir jóga einnig við hugleiðslu, þú ferð í einhvern annan heim og nærð að slaka á svo um munar! Margir hafa líka velt því fyrir sér hvort Jennifer sé ólétt núna en hún mætti á samkomu þar sem hún var í sínum klassíska LBD kjól en kjóllinn var víðari en vanalega og Jennifer strauk mallann sinn mikið.
Orðrómur hefur hinsvegar verið á kreiki að Jennifer og Justin muni ekki ganga að altarinu í sumar þar sem Brad Pitt og Angelina Jolie muni líklega gifta sig í sumar og Jennifer vill alls ekki láta tengja sig við brúðkaup fyrrverandi.
Hvað orðróminn um óléttuna varðar segist Jennifer ætla að láta fólk vita þegar að þessu kemur og að það verði á hennar eigin forsendum. Á meðan velta aðdáendur hennar því fyrir sér hvort beðið verði með brúðkaup þar til barnið kemur í heiminn.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig