Leikkonan Jennifer Aniston mætti á frumsýningu nýjustu myndar sinnar, Call me Crazy, í hlýralausum bol við svartar stuttbuxur en fatnaðurinn vakti ekki athygli heldur var það allt annað.
Jennifer hefði nefninlega betur sleppt því að mæta í hlýralausu á frumsýningu myndarinnar því hún var með einkennileg för á bakinu.
Leikkonan er þekkt fyrir að fara óhefðbundnar leiðir í ýmsum málum og förin á bakinu voru eftir aðferð sem heitir “cupping”. Þetta er forn asísk aðferð sem margar af stórstjörnunum notast við og á að örva blóðrásina og koma öllu í kroppinum í gang! Þá eru einskonar sogskálar settar á bakið og svo er kveikt í þeim svo að allt súrefni tæmist úr og á þetta að hafa hin bestu áhrif.
Farðinn sem var yfir förunum náði ekki að fela þetta en myndavélaflössin voru svo sterk og mikil að það sást allt og kom heldur undarlega út.
Slúðurmiðlar hafa smjattað mikið á þessum blettum en Jennifer var að sjálfsögðu stórglæsileg á rauða dreglinum þrátt fyrir sogskálablettina!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig