Leikkonan Jennifer Aniston sem bræddi hjörtu heimsbyggðarinnar þegar hún lék hina saklausu Rachel í sjóvarpsþáttunum Friends er orðin svaka díva sem heimtar hitt og þetta á tökustað.
Leikkonan er núna við tökur á kvikmynd en aðrir leikarar í myndinni eru meðal annars Isla Fisher og Tim Robbins. Leikkonan er með sér húsvagn sem er risastór og langt í burtu frá tökustaðnum og hún keyrir um á stórum jeppa á milli tökustaða á meðan aðrir keyra um á venjulegum bílum og kippa sér lítið upp við það að vera bara á “venjulegum” bílum.
Jennifer vill alls ekki hafa mikil samskipti við meðleikara sína þegar hún á pásu og fer því í húsvagninn sinn þegar það er hádegismatur og borðar þar með fólkinu “sínu” á meðan að allir aðrir leikarar myndarinnar setjast saman og spjalla í meira en klukkutíma.
Heimildamaður af kvikmyndasettinu segir að fólk sé farið að taka eftir miklum dívustælum hjá leikkonunni. Hún sé ekki þessi yndæla kona sem hún lítur út fyrir að vera og að það sé synd að Jennifer skuli láta svona því að fólk vilji gjarnan umgangast hana
…en ef svona stælar halda áfram þá verða fáir sem vilja vera í samneyti með henni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig