Leikkonan Jennifer Aniston hefur löngum verið þekkt fyrir fallegt hár. Hver manekki eftir “Rachel” klippingunni og strípunum?
Núna hefur leikkonan ákveðið að láta löngu lokkana fjúka og er komin með svokallaða bob- klippingu.
Jennifer hefur áður klippt sig stutt en það var þegar hún lék í þáttunum Friends. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar leikkonan klippti á sér hárið fyrst – sumir elskuðu klippinguna en aðrir ekki. Margar konur stukku þó til og létu klippa sig eins og Jennifer, á einni nótt var hálf kvenþjóðin búin að klippa sig stutt.
Jennifer lét þó klippingu vaxa fljótt úr og eftir aðeins tvær þáttaseríur mátti sjá leikkonuna skarta síðu hári á ný. Að sögn Jennifer tók hún skyndiákvörðun fyrir stuttu þegar hún var að horfa á sjónvarpið og sá klippingu sem henni leist vel á.
Hún sagði einnig að klippingin væri ekki fyrir neitt sérstakt hlutverk, sig hafi einfaldlega langað til að breyta til. Tímasetningin hentaði líka vel því Jennifer er víst ekki að fara vinna í neinum stórum verkefnum á næstunni og gat því leyft sér að klippa hárið án þess að það hefði nein áhrif á komandi kvikmyndaverkefni.
Hvað finnst þér?
Er Jennifer flottari með sítt hár eða ,,púllar” hún allar klippingar?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig