Leikkonan Jennifer Aniston vissi ekkert hvað hún átti við líf sitt að gera þegar hún var 25 ára.
Þá var hún einmitt gift Brad Pitt en leikkonan kallar það tímabil “vandræðalegt”. Hún segist hafa þroskast seint og verið ansi kærulaus á þessum aldri. Henni finnst hún samt vera hressari og líður eins og hún sé yngri í dag heldur en fyrir tæpum 20 árum síðan.
Jennifer viðurkennir að horfa annað slagði á gamla þætti af Friends bara til að fá smá upprifjun. Hún sé búin að gleyma sumum þáttum en um leið og hún horfir þá rifjast upp gamlar og góðar minningar. Hún viti þó alltaf hvaða ár hver þáttur var tekinn og muni alltaf eftir hvernig hárið á sér var.
Talandi um hár þá öfundar Jennifer ofurfyrirsætuna Gisele af hennar hári, segir að hárið á henni sé einstakt. Hárið á Kate Moss sé einnig í uppáhaldi hjá sér. Jennifer sjálf hefur fengið margar konur til að öfunda sig af sínu hári en þegar hún lék í Friends var Rachel klippingin afar vinsæl.
Gaman að vita að Jennifer er líka eins og hinir Friends aðdáendurnir sem horfa aftur og aftur á gamla og góða þætti.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig