Leikkonan Jennifer Aniston og unnusti hennar Justin Theroux eru að íhuga að gifta sig á Hawaii vegna nýrra laga sem verndar fólk gegn papparössum.
Í nýju lögunum er ákvæði um það að bannað sé að taka myndir af fólki þegar það er á heimilum sínum eða á einhverjum einkastöðum.
Söngvarinn Steven Tyler er búinn að berjast hart til þess að fá þetta í gegn og það gerðist loksins í vikunni. Steven á hús á Hawaii og hann segir að það sé sorglegt að vera að koma úr sturtu heima hjá sér, klæða sig eða jafnvel halda upp á jólin með börnunum sínum án þess að fá að vera í friði.
Viku síðar eru þessar myndir komnar í slúðurblöðin af því að einhver papparass sat í runna með góða linsu og náði myndum af honum í sínu eigin húsi!
Jennifer er afar annt um einkalíf sitt en Justin á hús á Hawaii. Hann hreinlega elskar eyjuna út í gegn. Jennifer er ekki alveg jafn yfir sig hrifin því Justin var mikill glaumgosi hérna í denn, fór með margar af sínum dömum til Hawaii og átti sínar stundir með þeim í húsinu sínu.
Parið er þó ákveðið í að gifta sig en Jennifer er við tökur á kvikmynd sem lýkur von bráðar og þá fer allur undirbúningur fyrir brúðkaupið á fullt.
Það hefur einnig komið til tals að parið muni gifta sig á heimili Jennifer en þar er verið að breyta og bæta og orðrómur hefur verið á kreiki að það sé fyrir brúðkaupið sjálft.
Enginn úr herbúðum Jennifer eða Justins vil þó staðfesta þær fréttir.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig