Leikkonan Jennifer Aniston fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni We’re the Millers sem verður frumsýnd von bráðar. Þar fer Jennifer með hlutverk strippara og leikkonan ákvað að koma sér í “strippform” fyrir tökur.
Jennifer eyðir miklum tíma fyrir framan tökuvélarnar fáklædd og þrátt fyrir að vera með einn heitasta kroppinn í Glysborginni ákvað hún að það þyrfti að tóna hann aðeins meira og gera hann ,,strippara- og tökulegri”.
Leikkonan borðaði kál og MIKIÐ af því en segir þó að hún hafi borðað þá daga sem hún þurfti að vera fáklædd. Þegar hungurlöngunin gerði vart við sig þá ákvað hún að fá sér kálflögur í staðinn fyrir bollaköku eða annað gúmmelaði. Hún át þó ekki bara kál heldur samanstóð mataræðið hennar af próteinum, grænmeti og að sjálfsögðu hinu umrædda grænkáli.
Jennifer sagði einnig að hún hafi reynt að hylja sem mest þegar hún átti að strippa en skilur núna samt sem áður ekki tilganginn í því þar sem hún var jú að leika strippara sem eru ekki þekktir fyrir að klæða sig í heldur úr!
Það verður skemmtilegt að sjá Jennifer í þessu hlutverki en stóra spurningin er: Mun hún “púlla” það að vera strippari?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig