Leikkonan Jenna Dewan-Tatum er gift kynþokkafyllsta manni heims Channing Tatum og eiga þau von á sínu fyrsta barni von bráðar.
Jenna segir að hún hafi átt von á því að líkaminn myndi breytast á núll einni og hún gersamlega fríka út yfir öllu á meðgöngunni en kviðurinn hefur stækkað hægt og rólega, líkaminn aðlagast meðgöngunni og nærveru kúlubúans hægt og rólega. Jenna segir einnig að það sé ástæða fyrir því að konur séu óléttar í níu mánuði því þegar komið er á níunda mánuð þá eru þær algjörlega tilbúnar til að takast á við móðurhlutverkið.
Jenna er eins og áður sagði gift leikaranum Channing Tatum og hún segir að flestir leikarar og leikkonur séu með leiklistina og framann á heilanum og hugsa ekki um annað en að komast áfram í bransanum. Þau Channing séu með metnað fyrir sínum frama en þau hugsi samt alltaf um sig og þeirra samband fyrst. Jenna segir að þau taki bara einn dag í einu og reyni alltaf að finna út hvernig þau geti látið hlutina ganga daglega.
Channing og Jenna eiga tvo hunda og hún segir að það hafi verið ágætis æfing en hún viti samt sem áður ekkert hvernig foreldrar þau muni verða en er samt sem áður viss um það að þau verði fljót að komast inn í foreldrahlutverkið.
Jenna segist pínu stressuð yfir því hvernig hún muni finna jafnvægi á milli framans og barnsins en hún sé þó búin að undirbúa sig vel undir komandi ævintýri.
Þau hjónin eiga eflaust eftir að vera góðir foreldrar og Jenna virðist vera orðin meira en tilbúin til þess að fá litla barnið sitt í fangið.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig