Leikkonan Jennifer Love Hewitt er þekkt fyrir fallegan og íturlegan vöxt og hefur þurft að sitja undir mikilli gangrýni vegna hans frá hinni dularfullu slúðurpressu hið vestra.
Sjálf segir Jennifer að hún vilji ekki vera of grönn og sé búin að sætta sig við líkamann sinn og hvernig hann er. Hún segir einnig að þegar hún sé of grönn þá séu allir að gagnrýna hana og öfugt, það sé aldrei hægt að gera öllum til geðs.
Til að halda sér í formi gengur Jennifer mikið og hleypur ásamt því að stunda jóga og gera pilates æfingar. Með því að stunda allar þessar æfingar heldur hún sér í sínu besta formi og þannig líður henni vel.
Jennifer passar þó að ofgera sér ekki því hún vill halda í þær línur sem hún er með. Þegar hún er ekki með línur þá segir hún að sér líði ekki vel í eigin líkama. Þetta er auðvitað rétti andinn, að fara vel með sig, hreyfa sig og æfa og láta ekki skoðanir annara buga sig.
Jennifer viðurkennir þó að hlaupin séu í miklu uppáhaldi hjá henni en móðir hennar sem lést á síðasta ári var mikil hlaupakona.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig