Um daginn fjallaði Díana um ljósmyndarann Terry Richardson og nokkrar af stjörnunum sem hann hefur verið að mynda…
…Terry hefur myndað endalaust af frægu fólki en svo hann hefur líka gert fólk frægt með myndunum sínum…til dæmis kærustuna sína hana Jen Brill.
Terry og Jen hafa verið svona “on-off” par en mér skilst að þau séu trúlofuð núna þrátt fyrir einhvern 20 ára aldursmun.
Það voru eiginlega myndirnar hans Terry sem gerði Jen Brill að þessari NYC ‘it’ stelpu sem hún er í dag. Terry heldur út eins konar dagbókar-bloggi þar sem hann birtir oft myndir frá deginum sínum og af vinum og oftar en ekki dúkka auðvitað upp myndir af Jen Brill í dagbókinni…alltaf í sjúklega flottum fötum og nýjustu designer skónum sínum!
Dagbókin hans er TerrysDiary
En núna sést Jen Brill ekki bara í ljósmyndum kærasta síns heldur er hún alltaf í flottustu partýunum og á fremsta bekk á tískusýningum!
Mér finnst hún allavega algjör snilli þegar kemur að klæðavali og stíl og það er virkilega gaman að skoða myndir af henni.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.