Jay-Z og Beyoncé Knowles eru á leiðinni hingað á klakann en snillingurinn Jay-Z ætlar að halda upp á afmælið sitt hérna ásamt konunni og félögum sínum.
Á vefritinu Nútíminn.is segir frá því að hjónin lendi í einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli á næstu dögum og dvelji á Íslandi í tæpa viku. Þau verða með íslenska leiðsögumenn á meðan á dvölinni á Íslandi stendur ásamt því að vera með íslenska öryggisgæslu að hluta. Lífverðir hjónanna verða með í för.
Þá segir einnig að þau ætli að koma víða við á Íslandi og meðal annars skoða þetta eldgos sem virðist aldrei ætla að hætta. Þá verður slegið upp afmælispartý fyrir Jay-Z sem verður 45 ára á fimmtudaginn í næstu viku. Þetta verður eitthvað! Kannski sirkustjald í Viðey?
Samkvæmt heimildum Nútímans dvelja hjónin á einhverjum tímapunkti á ferðamannastaðnum The Trophy Lodge í Úthlíð. Erfitt er að finna meiri lúxus á Íslandi en staðurinn er í eigu Jóhannesar Stefánssonar í Múlakaffi.
Þetta verður ekki í fyrsta skipti sem Beyoncé og Jay-Z koma til landsins en þau hafa millilent hérna og gistu þá á Hótel Keflavík… vúbb vúbb. Skelltu sér líka á Paddy’s og horfðu á leik Dallas Cowboys og New York Giants í úrslitakeppni bandarísku NFL-deildarinnar í ameríska fótboltanum.
Ja hérna. Þið verðið endilega að láta okkur vita ef þið sjáið þessar lifandi goðsagnir á ferðinni hér á klakanum í næstu viku. Þetta verður sko eitthvað!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.