Javier Vallhonrat er spænskur ljósmyndari fæddur 1953 í Madrid. Hann lærði myndlist en fór að vinna við tískuljósmyndun í byrjun sjöunda áratugarins.
Javier er með einstakt auga fyrir litum og formi og myndir hans líkjast einna mest litríkum málverkum. Hann hefur verið mjög eftirsóttur á ferli sínum, unnið mikið fyrir Vogue allstaðar í heiminum og gert stórar auglýsingaherferðir fyrir helstu snyrtivöru- og tískurisa heims.
Hér sérðu nokkrar vel valdar myndir eftir Javier:
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.