Þessi myndataka fyrir Japanska tímaritið NUMERO Magazine TOKYO er einfaldlega tær snilld!
Ljósmyndarinn heitir Sebastian Kim og daman sem pósar svona snilldarlega heitir Devon Aoki.
Myndirnar minna helst á teiknaðar myndir af kvenfólki frá 1950, svokallaðar Pin-up myndir. Ótrulega falleg litasamsetning og stíliseringin er bæði kvenleg og kúl.
http://www.sebastiankim.com/
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.