Söngkonan Janet Jackson tilkynnti það fyrir stuttu að hún væri búin að vera gift Wissam Al Mana síðan á síðasta ári.
Söngkonan hefur alltaf farið mjög leynt með einkalíf sitt og kom það því fæstum á óvart að hún væri búin að vera leynilega gift. Brúðkaupið var ekki stórt enda hefði verið ansi erfitt að leyna risastóru brúðkaupi. Þess í stað var athöfnin látlaus og innileg og aðeins þeirra nánustu ættingjar voru viðstaddir.
Þau þáðu engar brúðkaupsgjafir en í staðinn ákváðu þau að gefa rausnarlegar upphæðir til ýmissa samtaka sem tengjast börnum. Það er alltaf mjög göfugt og virðist færast í aukana hjá þeim sem “eiga allt” vestanhafs.
Að lokum biðja þau fólk að virða einkalíf sitt og biðja um að fá að njóta þess að vera í friði.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig