Jæja dömur, þá er búið að finna hinn nýja Christian Grey fyrir væntalegu kvikmyndina 50 gráir skuggar: Jamie Dornan!
Jamie Dornan er ekki stórt nafn í kvikmyndabransanum en þessi 31 árs gamli leikari hefur áður leikið í þáttunum “Once Upon a Time” sem eru sýndir á sjónvarpsstöðinni ABC. Dornan var ekki sá eini sem kom til greina en sænski leikarinn Alexander Skarsgård var einnig orðaður við hlutverk milljónamæringins Christian Grey.
Charlie Hunnam hætti nýlega við að leika í kvikmyndinni en hann er sagður hafa hætt við hlutverkið vegna launamála. Á Hunnam að hafa fundist launin of lág fyrir svo stóra mynd. Búist er staðfastlega við því að margir (aðallega konur) muni flykkjast á myndina en bækurnar hafa notið mikilla vinsælda undanfarið.
Jamie var að lokum boðið hlutverkið en kappinn hefur m.a. setið fyrir sem undirfatafyrirsæta hjá Calvin Klein – hann er því vanur að vera fáklæddur fyrir framan myndavélar.
Það verður að viðurkennast að drengurinn er heilmikill kroppur og hann mun án efa standa sig prýðilega sem Christian Grey!
Tökur á kvikmyndinni eiga að hefjast núna í nóvember og mun hún koma í kvikmyndahús í ágúst á næsta ári.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig