Það sem ekki er lagt á sig fyrir frægðina og góð hlutverk! Leikarinn sykursæti Jake Gyllenhaal fetar í fótspor annarra stórleikara og grennti sig töluvert fyrir kvikmyndahlutverk.
Hlutverkið sem um ræðir er fyrir kvikmyndira “Nightcrawler” en þar leikur Jake fréttamann sem var víst horaðri en eðlilegt þykir. Leikarinn góðkunni var bókstaflega ALLTAF í karakter, hann sá til þess að vera ávallt svangur til þess að geta endurspeglað karakterinn.
Leikarinn hefur misst tæp tíu kíló og er hann í raun óþekkjanlegur. Kinnbeinin eru innsogin og kroppurinn ekkert nema skinn og bein. Fleiri leikarar hafa svelt sig fyrir listina, bæði Christian Bale og Matthew McCaugnahey hafa misst tugi kílóa fyrir kvikmyndahlutverk.
Ef þessu væri snúið við og kvenmaður myndi gera slíkt hið sama, hvað ætli að yrði sagt? Charlize Theron og Renee Zellweger bættu á sig fyrir hlutverk sín í Monster og Bridget Jones og það var gagnrýnt mikið. Það væri forvitnilegt að vita hvað yrði sagt ef kona myndi vera grindhoruð og á barmi átröskunar fyrir hlutverk.
Manst þú eftir leikkonu sem grennti sig hrikalega mikið fyrir hlutverk?
Bara nokkrar hugrenningar um Hollywoodlífið – en það er óhætt að segja að Jake sé frekar veiklulegur á myndunum sem fylgja hér að ofan.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig