Nýlega opnuðu systurnar Ása og Jóna Ottesen tískuvefverslun sem ber hið skemmtilega nafn Lakkalakk…
Þær systur hafa báðar unnið mikið við tísku og vita því nákvæmlega hvað stelpur og konur vilja í dag.
Síðan býður bæði uppá nýjan og notaðan fatnað. Kjólar, sólgleraugu, hattar og skart er meðal þess sem er í boði á Lakkalakk og allt á nokkuð góðu verði.
Endilega tékkið á síðunni Lakkalakk en hana er mjög gaman að skoða, flottar myndir, flott módel og falleg föt.