Ég rakst á þennan svakalega flotta myndaþátt úr nýjasta eintaki Flair magazine…
…Umhverfið er mjög kunnulegt enda er þessi myndaröð tekin hér á Íslandi.
Ljósmyndarinn er franskur maður að nafni Jean-Francois Campos, fáránlega klár!
Módelið er hin unga Bregje Heinen en hún klæðist hér flíkum frá til dæmis Blumarine, Maison Martin Margiela, Chanel.
Allt saman mjög loðið og villt!
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að sjá þær stærri:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.