Eins og frægt er orðið dvöldu stjörnuhjónin Beyoncé og Jay Z á Íslandi fyrr í desember til þess að halda upp á afmæli Jay.
Fáar myndir hafa birst hingað til af heimsókninni en loksins hefur söngkonan deilt með okkur nokkrum myndum á Tumblr síðu sinni. Skötuhjúin heimsóttu meðal annars Bláa lónið, Skógarfoss og fóru í jöklaferð. Ekkert minna en þyrluflug dugði til að koma þeim á milli staða, auðvitað.
Ef þetta er ekki góð landkynning veit ég ekki hvað þarf til!
Úr afmælisveislu kappans – Þekkið þið staðinn?
Fleiri myndir má sjá hér að neðan og enn fleiri á heimasíðu Beyoncé hér.
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com