Leikkonan Isla Fisher á tvö börn og segir segir meðgöngukílóin vera erfið viðureignar en krakkana á hún með eiginmanni sínum Sasha Baron Cohen, sem þekktastur fyrir að leika Ali G, Bruno og Borat
Isla bætti á sig heilum þrjátíu kílóum á báðum meðgöngum og segir að maginn verði aldrei sá sami aftur og ekki sléttur en það sé allt í lagi því maginn hennar minni hana á meðgönguna og börnin sín.
Isla var með mikla morgunógleði á báðum meðgöngum og það eina sem hún gat borðað voru risastórar skálar með hvítu pasta, smjöri og osti. Það var eini maturinn sem hélt henni gangandi og hún ældi ekki upp!
Eftir fyrstu meðgönguna fór hún í tökur á kvikmyndinni Confessions of a Shopaholic þremur mánuðum eftir fæðingu. Leikstjórinn réð einkaþjálfara sem tók hana í gegn fyrir myndina og henni fannst það bæði slæmt og gott að þurfa að byrja af hörku í ræktinni strax eftir fæðingu. Hún vildi þó alls ekki bregðast þjálfaranum og lagði sig alla fram. Eftir seinni meðgöngu og fæðingu var hún með dóttur sína á brjósti og þannig hurfu kílóin í það sinn ásamt fjallgöngum og þjálfun með einkaþjálfara tvisvar sinnum í viku.
Leikkonan lítur meiriháttar vel út núna. Hún heldur kroppnum í formi með því að stunda jóga fimm sinnum í viku en Isla segir að jóga geti lagað allt stress og áhyggjur, það sé frábær leið til að slaka á og gleyma stund og stað.
Isla segist jafnframt þakklát fyrir litlu bumbuna sem er á henni eftir meðgöngurnar en henni finnst hún minna sig á afrekin sín sem eru dætur hennar sætu. Falleg hugsun hjá þessari flottu leikkonu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig