Ég hef áður fjallað um skóna frá Irregular Choice: Þetta merki nær alltaf að koma mér á óvart.
Skórnir eru gjörsamlega sér á báti þegar kemur að hönnun. Sumum finnast þessir skór sennilega hryllilega ljótir en ég er ekki á sama máli!
Jú sum pörin eru kannski einum of furðuleg en það er einmitt það sem gerir þá svo spes og fallega. Ég myndi ekki hata eins og eitt par af þessum furðulega yndislegu skóm.
Pörin kosta flest á bilinu 15-30.000 kr. og fást HÉR.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.