Þessa sérstöku iPod hátalara fann ég á netinu. Veit því miður ekkert hver hannaði þá eða hvar má kaupa þetta novelty fínerí en þeir eru ekki púkó.
Ótrúlega næs á náttborðið örugglega, eða skrifborðið í vinnunni… bústaðinn, bílinn… hvar sem er.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og þoli ekki arfa i görðum (miðaldra). Hef ólæknandi áhuga á heimildarmyndum og norrænum sakamálasögum og fæ kikk út úr því að fara á allskonar skrítin námskeið. Ég er óhemju forvitin og nýt þess að miðla og deila því sem ég sé og upplifi með öðrum. Til dæmis hér, – með þér.