Pabbar geta verið góðir í ýmislegt. Þeir styðja, kenna muninn á réttu og röngu og leggja stundum línurnar fyrir framtíðina.
Stundum eru þeir strangir en yfirleitt eru þeir góðir, og þeir setja jafnvel upp loftljósið fyrir mann. Það er því ósköp gott að hafa eins og einn pabba við hendina. Við höfum til heiðurs pabba ákveðið að gera Instagram-leiks sem er ofur einfaldur í þáttöku:
Taktu mynd af pabba, merktu hana á Instagram með #pjattpabbi og þú getur átt möguleika á að vinna tvo æðislega Armani herrailmi til að gefa honum!
Fyrirsætan þarf ekki endilega að vera pabbi þinn heldur bara einhver góður pabbi sem þér finnst eiga skilið að fá glaðning.
Leikurinn stendur yfir fram á föstudaginn 26. júlí nk. en þá finnum við einn skemmtilegan pjattpabba sem vinnur tvo klassíska góða Armani herrailmi í veglegum 100ml glösum:
Eau pour homme og Eau de nuit.
Góða skemmtun – og við biðjum að heilsa pabba þínum!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.