Það er alltaf jafn gaman að sjá myndir af fallegum heimilum.
Heimilið hans Stefans Söderberg er eitt af þessum fallegu heimilum. Gaurinn hefur ótrúlega flottan stíl og er hugsað fyrir hverju smáatriði. Stefan Söderberg er fatahönnuður í Svíþjóð og er einn af aðal eigendum hjá Hope í Svíþjóð. Hann virðist mjög hrifinn af hvítum, svörtum og gráum lit því fatalínan einkennist af mestu af þessum litum. En flottur hönnuður er hann. Hann er mjög hrifinn af skandinavískri hönnun og er heimilið hans stútfullt af fallegum húsgögnum frá þekktum hönnuðum. Lovlí á að líta!
Kíktu líka á heimasíðu Hope hér
Myndir fengnar að láni hjá Design & form
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.