Skó og fylgihlutalínan Gyðja Collection hefur slegið í gegn hér heima sem erlendis en af tilefni nýrrar línu ætla þau hjá Gyðju Collection að bjóða til sumarfagnaðar og lagersölu.
Sigrún Lilja framkvæmdarstjóri Gyðju segir þetta létta upphitun fyrir verslunarmannahelgina ásamt því að fagna nýrri skó og fylgihlutalínu þeirra Lilju Collection.
Því hafi þau ákveðið að slá tvær flugur í einu höggi og bjóða til lagersölu, hreinsa til fyrir nýju línuna ásamt því að fagna frábæru sumri en veðrið hefur leikið við okkur í sumar og starfsfólkið er í algjöru sumarskapi.
Þetta verður eflaust skemmtilegur dagur fyrir aðdáendur merkisins þar sem skór, stígvél og belti verða á verði sem ekki hefur sést áður en aðeins þennan eina dag, nýja línan þeirra verður einnig á 15% afslætti.
DJ Jay-O mun sjá um að halda uppi fjörinu fyrir okkur og gestum verður boðið upp á ferskt rósavín ásamt hágæða súkkulaði frá sjálfum Hafliða Ragnarsyni súkkulaðimeistara.
Lagersalan fer fram í dag, miðvikudaginn 1.ágúst á milli kl 15-19 í Sýningarsal Gyðju, sem er staðsett í Hæðarsmára 6 (neðri hæð) fyrir neðan Lifandi Markað í Kópavogi.
Gestir og gangandi eru að sjálfsögðu velkomnir.
Nánari upplýsingar má síðan finna á Facebook síðu Gyðju Collection www.facebook.com/GydjaCollection
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.