[youtube width=”625″ height=”425″]http://www.youtube.com/watch?v=3DKO5rr1y9c[/youtube]
Reykjavíkurdætur og Halldór Eldjárn settu saman þetta lag og myndband fyrir druslugönguna sem fer fram næsta laugardag en með henni vilja þáttakendur leggja áherslu á að ábyrgðin er á hlut gerandans í málum er snúa að kynferðisofbeldi.
Það þýðir að það skiptir engu hvernig kona klæðir sig eða hvort hún er búin að drekka vín, taka eiturlyf eða sé bláedrú… kynferðisofbeldi verður aldrei á hennar ábyrgð sé hún beitt því og það á aldrei að réttlæta óhugnaðinn með því að benda á hvernig hún hafi verið klædd.
Það sama gildir vitaskuld fyrir alla aðra, – börn, karlmenn, unglinga… og svo framvegis. Kynferðisofbeldi er aldrei og verður aldrei á ábyrgð fórnarlambsins.
Það eru Halldór Eldjárn ásamt Högna Egilssyni sem semja lagið en textinn er í höndum þeirra Sölku Valdsdóttur, Sigurlaugu Söru Gunnarsdóttur, Steiney Skúladóttur og Þuríðar Blær Jóhannsdóttur.
Við Pjattrófur höfum ávallt fjölmennt í þessa göngu og ætlum að halda því áfram! Sjáumst þar, vonandi í stuttum pilsum, ef veður leyfir.
D.R.U.S.L.A
Það gefur þér ekkert leyfi ert’ að skilja það?
Of sæt, of full, of ein of seint of tilíða.
Ekki skylt’að hlýða, konur segja sjálfar komdu ef þær vilja ríða.
Annars þarft’að bíða.
Skömm skömm skömm
Á ég að skammast mín?
Fyrir að djamma?
Fyrir að fá mér vín?
Eitthvað annað?
hranna á mig varalit dettí sleik fara á deit
vera fín
er það bannað?
skömm skömm skömm
Ég er ekki að nenna
þessu fjölmenna hugarfari
kalla og kvenna
henni að kenna
brjóst eins og jenna
sástennan kjól? Hún var glenna
biiiitsj fokkið ykkur!
Skömm skömm skömm
Hún var svikin því
hún fór í búrku blautbol eða bikiní
og fyrir vikið nærir það samviskubitið
sem Ísland hefur bitið í sig
vitiði hvað það er skitið
að þið forritið okkur til að hugsa eins og þið
og smitið okkur af áliti
með uppeldi
að útlitið bjóði upp á ofbeldi
það er nauðgunarveldi
Því ég á mig sjálf
á mig sjálf
á mig sjálf
við eigum okkur sjálf
“Ömm, hann var sko í vímu”
Sagði hann og sett’upp á sig sína grímu
og yfirvöld í glímu vegna hennar rímu
sem rímar ekki við hans – lygaskímu
ah, þessar óskýru línur
sem afsaka í besta falli kynlífsgínur
en vinur, ekki halda að vín og mjúkar línur
séu tilboð til að misnota það sem þú finnur
þarf ég virkileg’að kaupa piparsprey?
Við erum engin fokkin- grey
að þegja er það – sam’og nei
Don’eat the cake Anna Mae,
Don’eat the cake Anna Mae Hey!
Ein af fjórum í okkar heimsveldi
verður fyrir kynferðislegu ofbeldi
Er það út af lélegu barnauppeldi?
Eða hæstirétti sem stöðugt felldi
Þessar ákærur,
kalla þær smáskræmur,
málflutningur dræmur
og þar af leiðir ekki saknæmur.
Ég sagði nei – það var ekki nóg
Blár og marinn – það var ekki nóg
Áfallastreituröskun – það var ekki nóg
Ég var að segja satt en það var ekki nóg
Ókunnugu kunningjar,
ástvinir og ættingjar
með aukinni hvatningu, þekkingu
vitundarvakningu, gagnkvæmri virðingu
er kannski hægt að vinna gegn þessari samfélagsblekkingu,
spillingu,
Nokkuð ljóst að kerfið þarf á breytingum að halda,
samfélagsviðhorf miðalda
einkenna landann fokkdöpp kerfi
Þett’er algjör skandall
D-R-U-S-L-A
Þarf ég að stafa það niðrá blað, feitletrað
caps lock, ég á minn líkama.
Hey! Ert’að skilja það?
Drusla þarf að slugsa í misrétti er talin rusl af almenningi.
Því ég er drusla fæ usss frá hæstarétti sú sem myndi sussa á feðraveldi.
Því ég er, drusla, veld usla af sjálfsöryggirugludruslutussa, skilurekki?
Því ég er drusla ert’að hlusta? því þú veist ekki að druslur hugs’um mannréttindi
Því ég á mig sjálf
á mig sjálf
á mig sjálf
við eigum okkur sjálf
D.R.U.S.L.A.
Segðu það!
D.R.U.S.L.A
D.R.U.S.L.A
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.