Ég hef lengi verið mikill aðdáandi Gucci Flora ilmsins sem kom á markað fyrir 3 árum en ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar ég kynntist Gucci Guilty Intense nú fyrir jólin í fyrra.
Ilmurinn, sem kom á markað síðasta haust, er án efa á topp fimm listanum yfir mína eftirlætis ilmi og kærkomin við hlið Flora í ilmvatnshillunni.
Gucci Guilty Intense fyrir konur er bæði mjúkur, hlýr, kynþokkafullur og klassý. Ilmurinn er með mildum ávaxta tón af mandarínum en neðstu nóturnar einkennast af patchouli og amber. Hann er ekki of ‘unglingslegur’ og enganveginn ‘ömmulegur’ bara algerlega fullkomlega mitt á milli, djarfur og svalur.
Umbúðirnar eru eins og skartgripur. Þungt glas í gylltum ramma með Gucci merkinu.
Algjört eftirlæti!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.