Þessar mjög svo svölu og persónulegu svart-hvítu ljósmyndir eru af nýgiftu hjónunum Kate Moss og eiginmanni hennar Jamie Hince, gítarleikara The Kills. Ljósmyndirnar eru teknar af vini Kate Moss, tískuljósmyndaranum Terry Richardson.
Terry er þekktur ljósmyndari í tísku-og tónlistarbransanum og hefur verið umtalað í netheiminum að hann sé hálfgerður pervert þegar kemur að ljósmyndun, líklega þar sem hann er fyrir að láta glitta í brjóst og fleira sem sumu fólki þykir ósiðlegt. Terry er hinsvegar afar vinsæll hjá stjörnunum og var boðsgestur í brúðkaupi þeirra hjóna þar sem hann tók jafnframt nokkrar líflegar myndir.
Daginn eftir kom Terry Richardson við á hótelherbergi hjónakornanna á Ritz og tók myndir af nýgifta parinu. Kate á fyrir eina dóttur og segir sagan að Kate og Jamie ætli sér að verða ófrísk eftir brúðkaupsnóttina -það hefur greinilega verið unnið í þeim málum -því ég sé þreytt andlit og heimsfræga geirvörtu Kate.
Jamie Hince og Alison úr the kills spjalla saman um tónlistina og hvernig þau kynntust -spjallið á sér stað að mestu upp í rúmi!
Hér er farið lauslega yfir feril kate moss, í karlamálunum þar eru m.a. gömlu sjénsanir johnny depp, peter doherty og jefferson hack (sem hún eignaðist dótturina lila grace með jefferson )dregnir upp á dekk.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.