Í dag er tískudagurinn mikli því ekki nóg með að MiuMiu ætli að senda sýningu út live í kvöld heldur geturðu séð það heitasta frá Louis Vuitton núna eftir klukkutíma -eða kl 13:30. Sýningin er sent beint út via Facebook og Iphone!
Louis Vuitton er eitt fallegasta dömufatamerkið í tískuheiminum og því er ekki amalegt að fá forskot og góða innsýn í hugarheim Louis Vuitton fyrir 2010-2011. Það eina sem þú þarft að gera er að smella þér á þessa síðu : http://www.facebook.com/LouisVuitton
góða skemmtun!
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.