Svartir Sunnudagar snúa aftur í vetur með sýningar á hverju sunnudagskvöldið í vetur kl 20:00 en leikurinn hefst sunnudaginn 11. október, með sýningu á kvikmyndinni Come and See.
Þetta er talin vera ein áhrifamesta kvikmynd, sem gerð hefur verð um grimmdarverk herja fasista í Sovétríkjunum í síðari heimsstyrjöldinni.
Myndin gerist á árinu 1943 í Hvíta-Rússlandi sem varð einna verst úti af völdum innrásarherja Þjóðverja. 628 hvítrússnesk sveitaþorp voru jöfnuð við jörðu og meira en 100 þúsund íbúar þeirra, konur, börn og gamalmenni týndu lífi sínu með skelfilegum hætti.
Kvikmyndin Come and See hlaut margvíslega viðurkenningu og verðlaun á sínum tíma, ma. gullverðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Moskvu. Hún var sýnd á kvikmyndahátíð í Reykjavík haustið 1987 í Laugarásbíói og fólk sem sá hana þá man enn eftir myndinni eins og það hefði gerst í gær. Þetta er ein áhrifamesta kvikmynd sögunnar og ómissandi fyrir alla alvöru bíónörda að sjá hana.
Það er þó réttast að mæla ekki með þessari mynd fyrir viðkvæma. Hér er viðburðurinn á Facebook.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.