Ég viðurkenni fúslega að ég er algjör Harry Potter fíkill og hef verið síðan ég var 14 ára.
Ég fór meira að segja einu sinni í bókabúð á miðnæturopnun til þess eins að ná eintaki af nýjustu Harry Potter bókinni. Að vísu fór ég ekki í búning en ég get samt sagt að Harry Potter bækurnar og myndirnar eru í alveg sérstöku uppáhaldi.
Mér datt í hug um daginn að líta á það hvernig ungu leikararnir úr myndunum líta út í dag og útlit sumra þeirra samanborið við það í myndunum kom frekar skemmtilega á óvart!
Tinna hefur brennandi áhuga á næstum öllu en þó líklega mest á sjónvarpi og kvikmyndum, án þess þó að hafa nokkurt faglegt vit á hvorugu.
Hún er nemandi í mannfræði og starfar með náminu sem samfélagsmiðlaráðgjafi. Hún elskar allt sem kemur eldamennsku og bakstri við, og þá mest af öllu að baka íslenskar pönnukökur og að poppa örbylgjupopp. Markmið Tinnu í lífinu er að vera góð, láta gott af sér leiða og skemmta sér frábærlega á meðan.