Hver er tilgangur lífsins? Þessi spurning hefur svo mörg og ólík svör, hver og einn skilgreinir sinn tilgang.
Tilgangurinn gæti verið að fjölga sér, að finna hamingjuna, sinna fjölskyldu og vinum; gera góðverk, hafa metnað í vinnu, að kynnast ólíkum menningarheimum og svo mætti lengi telja.
Tilgangurinn: Í mínum huga er tilgangur lífsins ekki eitt atriði.
Mín sýn er sú að tilgangur lífsins sé að geta verið ánægð með sitt líf og ákvarðanir þegar maður er kominn á efri ár og lítur til baka yfir farin veg.
Kannist þið ekki við einhvern sem er kominn á aldur og er sífellt bitur og gefur lítið af sér? Það mun ekki vera ég!
Ég vil vera ánægð gömul kona
Undarlegt að segja það en mér finnst þetta útskýra svo margt og um leið finnst mér þetta gott mottó að lifa eftir.
Það eru nokkrar leiðir sem ég held að geti hjálpað mér að verða sátt í ellinni.
__________________________________________________
Að búa til góðar og áhugaverðar minningar
Að vera ekki sífellt á hlaupum
Að njóta augnabliksins
Að elta draumana
Að gera mitt allra besta í uppeldi barnanna
Að segja það sem mér býr í brjósti
Að taka áhættur
Að elska og vera elskuð til baka
Að láta ekki koma illa fram við mig og standa á mínu
Að vera góð manneskja
Að koma vel fram við alla sem á vegi mínum verða
Að finna mér vinnu sem veitir ánægju
Að gera mitt allra besta í því sem ég tek mér fyrir hendur
Að rækta samband mitt við fjölskyldu, vini, maka og börn
Að vera mín eigin besta vinkona
Vonandi tekst mér þetta!
Sylvía er einkaþjálfari, yin jóga kennari, heilsumarkþjálfi og eigandi Optimal Health sem er andleg og líkamleg þjálfun fyrir konur. Sylvía býr á Spáni ásamt syni sínum og Oreo kisunni þeirra.