Pjattrófur ríða nú á vaðið og taka viðtöl við skemmtilega íslendinga sem ýmist eru vel þekktir eða bara áhugaverðir á einhvern hátt.
Við leitum ráða og fáum um leið að kynnast “hinni hliðinni” á manneskjunni en sú fyrsta sem við hittum er Inga Reynisdóttir sölu -og markaðsstjóri. Inga hefur lent í ýmsu í gegnum tíðina, meðal annars kynnst draugum og óvanalega mörgum nautum og sporðdrekum.
Inga á um 990 vini og vinkonur á Facebook en þau vita eflaust ekki allt þetta…
Í hvaða merk’ertu? Naut.
Þekkirðu óvenjulega marga einstaklinga í sama stjörnumerkinu og hvaða merki er það? Naut og Sporðdrekamerkinu .
Áttu auðvelt með að sofna á kvöldin eða hugsarðu of mikið? Já, á mjög auðvelt með að sofna -þarf bara fara venja mig að fara fyrr í rúmið.
Hvert er næsta tilhlökkunarefnið í lífi þínu? Langþráð frí í þrjár vikur á sólarströnd.
Hefurðu séð draug? Já nokkra, þurfti einu sinni að fá sálrannsóknarfélagið til mín að kveða burt óvelkomna gesti í íbúð sem ég bjó í fyrir allmörgum árum síðan, ekki skemmtileg reynsla en frekar fyndin eftir á að hyggja.
Áttu uppáhalds hönnuð? Day Birger et Mikkelsen.
Flottasta kvenfyrirmyndin? Frú Erla Tryggvadóttir athafnakona er amma mannsins míns. Hún kann að lifa lífinu hlæjandi og hafa gaman af því. Hún er ein fróðasta og áhugaverðasta kona sem ég hef kynnst.
Uppáhals tímasóunin? Njósnavefur samtímans eða Facebook.
Hvernig bíl langar þig í? Benz SLS AMG.
Hvaða mistök gera pör helst í samböndunum sínum? Gleyma rómantíkinni í sambandinu, sambönd eru vinna og ef þú sinnir henni ekki verður maður rekin.
Nefndu fimm uppáhalds bíómyndirnar þínar:
- Godfather
- Where is something abut Mary
- Pulp Fiction
- Lén
- Dinner for schmucks
Hefurðu verið ástfangin af poppstjörnu? Já ekki spurning var ástfanginn af Gerorge Michael á unglingsárunum .
Hvaða mistök gera pör helst í samböndunum sínum? Gleyma rómantíkinni í sambandinu, sambönd eru vinna og ef þú sinnir henni ekki verður maður rekinn.
Hvað er skemmtilegast við það sem þú ert að gera núna? Kynnast nýju fólki og reyna nýjar leiðir.
En erfiðast? Að samræma vinnuna, heimilið og börnin fjögur – já og eiginmanninn.
Hvaða starf myndirðu velja þér ef þú værir ekki að gera það sem þú ert að gera núna? Sjálfstæðan rekstur
Hvað ertu að fara að gera á eftir? Hitta fullt af skemmtilegum stelpum í happy hour á Kex .
Manstu eftir vandræðalegu atviki sem henti þig á gelgjuskeiðinu? Guð já hvað höfum við langan tíma…? 🙂 Dró einu sinni tveggja metra háan gervipálma á MacDonalds eftir mér og hreinsaði matinn af borðunum hjá öllum gestunum- frekar vandræðilegt.
Hvernig langar þig að verða sem gömul kona? Í fullu fjöri með kokteil í annarri og sígó í hinni!
Að lokum: Heilræði til okkar hinna? Það er gjöf að fá að vakna á hverjum degi, notum hana vel og verum hamingjusamar, lífið er of stutt fyrir leiðindi.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.