Um daginn sögðum við frá hönnunarkeppni Fosshótelanna þar sem fjögur lið skipuð útskrifuðum hönnuðum kepptust við að gera flottasta hótelherbergið.
Nú eru herbergin tilbúin og komið er að kosningunni um vinsælasta herbergið. Hvaða herbergi finnst þér flottast?
Einn heppinn aðili, sem kýs sitt uppáhaldsherbergi, fær að launum gjafabréf frá Fosshótelum, gistingu fyrir tvo með morgunverði. Smelltu á nafn og númer þess herbergis sem þér finnst smartast!
Lið 1 – Hrafntinna
Lið 2 – Rjúpa
Lið 3 – Andstæður Íslands
Lið 4 – Slabb
Herbergin eru opnuð núna kl 16:00 og á sama tíma verður í gangi sýningin Rendez-wood?, sem er hluti af HönnunarMars. Allir hönnunaraðdáendur eru hvattir til að líta við!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.